12.09.24
Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 24 1218 - RIKV 25 0319
Flokkur RIKV 24 1218 RIKV 25 0319
ISIN IS0000036499 IS0000036721
Gjalddagi 18.12.2024 19.03.2025
Útboðsdagur 16.09.2024 16.09.2024
Uppgjörsdagur 18.09.2024 18.09.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

Aðrar fréttir

18.09.24
Ríkisbréf
Ríkisbréfaútboð fellur niður

Lánamál ríkisins hafa ákveðið að fella niður útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda 20. september 2024 þar sem markmiðum um útgáfu á ársfjórðungnum hefur þegar verið náð.