18.09.24 Ríkisbréf Ríkisbréfaútboð fellur niður Lánamál ríkisins hafa ákveðið að fella niður útboð ríkisbréfa sem fyrirhugað var að halda 20. september 2024 þar sem markmiðum um útgáfu á ársfjórðungnum hefur þegar verið náð.
12.09.24 Ríkisvíxlar Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 24 1218 - RIKV 25 0319 Flokkur RIKV 24 1218 RIKV 25 0319 ISIN IS0000036499 IS0000036721 Gjalddagi 18.12.2024 19.03.2025 Útboðsdagur 16.09.2024 16.09.2024 Uppgjörsdagur 18.09.2024 18.09.2024 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.