27.03.24
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Annar ársfjórðungur 2024

  • Á öðrum ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 30-40 ma.kr. að söluvirði.
  • Nýr óverðtryggður flokkur ríkisbréfa með gjalddaga árið 2027 verður gefinn út á ársfjórðungnum og verður stefnt á viðskiptavakt með flokkinn.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir flokkar ríkisbréfa og mun stærð flokka og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.

2.ársfj.áætlun 2024

Aðrar fréttir

15.05.24
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415
Flokkur RIKB 27 0415
ISIN IS0000036291
Gjalddagi 15.04.2027
Útboðsdagur 17.05.2024
Uppgjörsdagur 23.05.2024
10% viðbót 22.05.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 24 0717 - RIKV 24 1120
Flokkur RIKV 24 0717 RIKV 24 1120
ISIN IS0000036267 IS0000036366
Gjalddagi 17.07.2024 20.11.2024
Útboðsdagur 13.05.2024 13.05.2024
Uppgjörsdagur 15.05.2024 15.05.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.