13.06.19
Ríkissjóður gefur út nýtt skuldabréf í evrum á hagstæðustu vöxtum í sögu lýðveldisins

Ríkissjóður Íslands hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, eða að jafnvirði um 71 milljarði króna.  

Skuldabréfin bera 0,1% fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 0,122%. Þetta eru hagstæðustu vextir í sögu lýðveldisins. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 2,5 milljörðum evra eða ríflega fimmfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum Barclays, JP Morgan, Morgan Stanley og Nomura. 

I aðdraganda nýju útgáfunnar gerði ríkissjóður tilboð í útistandandi fjárhæð eldri skuldabréfaútgáfu frá árinu 2014,  sem nam upphaflega 750 milljónum evra. Eigendur bréfa að nafnvirði um 60 milljónum evra eða um 8,5 ma.kr. tóku tilboði ríkissjóðs til viðbótar við þær 398 milljónir evra sem keyptar voru til baka í desember 2017. Þeir fjárfestar sem tóku þátt og vildu, fengu forgang í nýju útgáfunni.

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 25 0820 - RIKV 25 1119
Flokkur RIKV 25 0820 RIKV 25 1119
ISIN IS0000037216 IS0000037547
Gjalddagi 20.08.2025 19.11.2025
Útboðsdagur 19.05.2025 19.05.2025
Uppgjörsdagur 21.05.2025 21.05.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 27 0415 - RIKB 38 0215
Flokkur RIKB 27 0415 RIKB 38 0215
ISIN IS0000036291 IS0000037265
Gjalddagi 15.04.2027 15.02.2038
Útboðsdagur 09.05.2025 09.05.2025
Uppgjörsdagur 14.05.2025 14.05.2025
10% viðbót 13.05.2025 13.05.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.