04.06.25
Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 25 0917 - RIKV 25 1217
Flokkur RIKV 25 0917 RIKV 25 1217
ISIN IS0000037349 IS0000037695
Gjalddagi 17.09.2025 17.12.2025
Útboðsdagur 06.06.2025 06.06.2025
Uppgjörsdagur 11.06.2025 11.06.2025

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Vakin er athygli á því að rafræn skráning ríkisvíxilsins RIKV 25 0917 er hjá Verðbréfamiðstöð Íslands hf. (VBM). Flokkurinn RIKV 25 1217 verður skráður hjá Nasdaq CSD.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.

Aðrar fréttir

03.12.25
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 29 0917 - Skiptiútboð
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 29 0917
ISIN IS0000037265 IS0000037711
Gjalddagi 15.02.2038 17.09.2029
Útboðsdagur 05.12.2025 05.12.2025
Uppgjörsdagur 10.12.2025 10.12.2025
     
Uppkaupsflokkur RIKS 26 0216  
Uppkaupsverð (clean) 98,9200  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Eingöngu er hægt að greiða fyrir flokkana með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Ekki er tekið við greiðslu í reiðufé.

Verðmæti uppkaupsbréfanna er metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Afhenda þarf Seðlabankanum bréfin fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi.

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 26 0216.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.