10.08.26 Stærð RIKB 26 1015 Stærð flokksins RIKB 26 1015 eftir skiptiútboð 7. ágúst 2026 er 56.117.588.711 að nafnvirði. Til baka
05.08.26 Ríkisbréf Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 29 0416 - RIKB 42 0217 - Skiptiútboð eða reiðufé Flokkur RIKB 29 0416 RIKB 42 0217 ISIN IS0000039121 IS0000033884 Gjalddagi 16.04.2029 17.02.2042 Útboðsdagur 07.08.2026 07.08.2026 Uppgjörsdagur 12.08.2026 12.08.2026 10% viðbót 11.08.2026 11.08.2026 Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015 Uppkaupsverð (clean) 99,7100 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Freyr Harðarson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9630.