01.07.25
Tilkynning um aukaútboð ríkisbréfa - RIKB 32 1015 - Skiptiútboð

Í framhaldi af uppgjöri á HFF bréfum ÍL-sjóðs hefur verið ákveðið að efna til skiptiútboðs þar sem eigendum verðtryggða ríkisbréfaflokksins RIKS 50 0915 gefst færi á að skipta yfir í óverðtryggða flokkinn RIKB 32 1015. Áhugasömum er bent á að snúa sér til aðalmiðlara til að taka þátt í skiptiútboðinu.

Flokkur RIKB 32 1015
ISIN IS0000037752
Gjalddagi 15.10.2032
Útboðsdagur 03.07.2025
Uppgjörsdagur 08.07.2025
   
Uppkaupsflokkur RIKS 50 0915
Uppkaupsverð (clean) 112,9150, sem til skýringar jafngildir 2,78% ávöxtunarkröfu.

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Eingöngu er hægt að greiða fyrir flokkana með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Ekki er tekið við greiðslu í reiðufé.

Verðmæti uppkaupsbréfanna er metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum (þ.e. dirty price). Afhenda þarf Seðlabankanum bréfin fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi.

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKS 50 0915.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Starfsfólk Lánamála ríkisins veitir nánari upplýsingar í síma 569 9994. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Aðrar fréttir

15.07.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 29 0917
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 29 0917
ISIN IS0000037265 IS0000037711
Gjalddagi 15.02.2038 17.09.2029
Útboðsdagur 17.07.2026 17.07.2026
Uppgjörsdagur 22.07.2026 22.07.2026
10% viðbót 21.07.2026 21.07.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.