30.12.24
Stefna í lánamálum ríkisins 2025-2029

Stefna þessi um markmið og viðmið fyrir lánastýringu ríkisins 2025 – 2029 er sett fram á grundvelli fjármálaáætlunar, í samræmi við 38. gr. laga nr.123/2015 um opinber fjármál. Stefnan skal sett fram árlega. Stefna í lánamálum er sett fram til 5 ára og byggir hún á fyrri stefnu sem gefin var út í desember 2023.

Stefna í lánamálum ríkisins 2025-2029 (pdf)

Aðrar fréttir

30.09.26
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fjórði ársfjórðungur 2026

  • Á fjórða ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 28,5 ma.kr. að söluvirði.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKB 27 0415 á fjórðungnum.

4.ársfj.áætlun 2026

16.09.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 38 0215 - RIKS 50 0915
Flokkur RIKB 38 0215 RIKS 50 0915
ISIN IS0000037265 IS0000037794
Gjalddagi 15.02.2038 15.09.2050
Útboðsdagur 18.09.2026 18.09.2026
Uppgjörsdagur 23.09.2026 23.09.2026
10% viðbót 22.09.2026 22.09.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.