23.06.26
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKS 50 0915

Í tengslum við útboð sem haldið var 19. júní stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKS 50 0915
ISIN IS0000037794
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 187.000.000
Uppgjörsdagur 24.06.2026
Samtals staða flokks (nafnvirði) 41.612.020.947

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 27 0217
Flokkur RIKV 27 0217
ISIN IS0000039535
Gjalddagi 17.02.2027
Útboðsdagur 17.08.2026
Uppgjörsdagur 19.08.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.