28.01.25
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 27 0415 - RIKB 35 0917

Í tengslum við útboð sem haldið var 24. janúar stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 27 0415 RIKB 35 0917
ISIN IS0000036291 IS0000035574
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 189.000.000 161.000.000
Uppgjörsdagur 29.01.2025 29.01.2025
Samtals staða flokks (nafnvirði) 82.993.000.000 77.454.500.000

Aðrar fréttir

Með vísan til fréttatilk. ÍL-sjóðs og fjármálaráðuneytisins um möguleg slit á ÍL-sjóði

Lánamál ríkisins tilkynna að eftirfarandi breyting verði gerð á gildandi ársáætlun Lánamála. Í núverandi áætlun er gert ráð fyrir að gefa út nýjan verðtryggðan flokk með gjalddaga á árinu 2044 með fyrirhugaðri viðskiptavakt. Þess í stað verður gefinn út verðtryggður flokkur með gjalddaga á árinu 2050 með fyrirhugaðri viðskipavakt á þessu ári.

Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 26 1015 - RIKB 38 0215 - Skiptiútboð eða reiðufé
Flokkur RIKB 26 1015 RIKB 38 0215
ISIN IS0000034874 IS0000037265
Gjalddagi 15.10.2026 15.02.2038
Útboðsdagur 07.03.2025 07.03.2025
Uppgjörsdagur 12.03.2025 12.03.2025
10% viðbót 11.03.2025 11.03.2025
     
Uppkaupsflokkur RIKB 25 0612  
Uppkaupsverð (clean) 99,8800  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði.

Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price).

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 25 0612.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.