12.11.24
Niðurstöður viðbótarútgáfu - RIKB 28 1115 - RIKB 35 0917

Í tengslum við útboð sem haldið var 8. nóvember stóð aðalmiðlurum til boða, samkvæmt 6. grein í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa, að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða.

Flokkur RIKB 28 1115 RIKB 35 0917
ISIN IS0000028249 IS0000035574
Viðbótarútgáfa (nafnvirði) 487.500.000 437.500.000
Uppgjörsdagur 13.11.2024 13.11.2024
Samtals staða flokks (nafnvirði) 118.882.301.519 65.224.500.000

Aðrar fréttir

30.12.24
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Fyrsti ársfjórðungur 2025

  • Á fyrsta ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 40-60 ma.kr. að söluvirði.
  • Nýr óverðtryggður flokkur ríkisbréfa með gjalddaga árið 2038 verður gefinn út á ársfjórðungnum og verður stefnt á viðskiptavakt með flokkinn.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir flokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.

1.ársfj.áætlun 2025

30.12.24
Ársyfirlit
Ársáætlun í lánamálum ríkissjóðs 2025
  • Áætlað er að útgáfa ríkisbréfa nemi 180 ma.kr. að söluvirði árið 2025.
  • Fyrirhugað er að gefa út nýjan óverðtryggðan ríkisbréfaflokk með gjalddaga 2038 og tvo nýja verðtryggða ríkisbréfaflokka með gjalddaga 2029 og 2044. Stærð flokka og markaðsaðstæður munu ráða því hversu mikið verður selt í einstökum flokkum ríkisbréfa.
  • Til greina kemur að mæta fjárþörf ríkissjóðs á árinu að hluta til með hagnýtingu erlendra innstæðna hjá Seðlabanka Íslands.

Ársáætlun 2025.pdf

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 25 0319 - RIKV 25 0716
Flokkur RIKV 25 0319 RIKV 25 0716
ISIN IS0000036721 IS0000037117
Gjalddagi 19.03.2025 16.07.2025
Útboðsdagur 16.12.2024 16.12.2024
Uppgjörsdagur 18.12.2024 18.12.2024

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.