08.05.26 Stærð RIKB 26 1015 Stærð flokksins RIKB 26 1015 eftir skiptiútboð 8. maí 2026 er 59.534.853.606 að nafnvirði. Til baka
13.05.26 Ríkisvíxlar Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 1118 Flokkur RIKV 26 1118 ISIN IS0000039212 Gjalddagi 18.11.2026 Útboðsdagur 18.05.2026 Uppgjörsdagur 20.05.2026 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.
06.05.26 Ríkisbréf Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 29 0416 - Nýr flokkur - Skiptiútboð eða reiðufé Flokkur RIKB 29 0416 ISIN IS0000039121 Gjalddagi 16.04.2029 Útboðsdagur 08.05.2026 Uppgjörsdagur 13.05.2026 10% viðbót 12.05.2026 Uppkaupsflokkur RIKB 26 1015 Uppkaupsverð (clean) 99,4600 Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokki, með því ISIN númeri og með þeim gjalddaga sem fram kemur í töflunni hér að ofan. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi. Greiða má fyrir flokkana með reiðufé eða með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Greiðsla í reiðufé þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi. Ef greiðsla er í formi bréfa í uppkaupsflokki þarf tilkynning um magn þeirra að berast fyrir kl. 14:00 á útboðsdegi. Í því tilviki er verðmæti uppkaupsbréfanna metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 26 1015. Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins. Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.