27.05.25
Ríkissjóður kaupir eigin skuldabréf að nafnvirði 204 milljónir evra

Ríkissjóður hefur keypt til baka eigin skuldabréf að nafnvirði 203,7 milljónir evra (ISIN: XS2182399274) á verðinu 98,81. Það samsvarar um 29 milljörðum króna. 

Þann 19. maí bauðst ríkissjóður til að kaupa alla útistandandi fjárhæð eigin skuldabréfa sem gefin voru út árið 2020 og eru á gjalddaga 3. júní 2026. Tilboðið stóð til kl. 17.00 þann 23. maí. Heildarnafnverð útgáfunnar nam 500 milljónum evra.

Uppkaupin eru liður í lausafjár- og skuldastýringu ríkissjóðs. Endurkaupin verða greidd með hluta andvirðis evruskuldabréfs sem ríkissjóður gaf út á dögunum.

Aðrar fréttir

21.01.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 28 1115 - RIKS 37 0115
Flokkur RIKB 28 1115 RIKS 37 0115
ISIN IS0000028249 IS0000033793
Gjalddagi 15.11.2028 15.01.2037
Útboðsdagur 23.01.2026 23.01.2026
Uppgjörsdagur 28.01.2026 28.01.2026
10% viðbót 27.01.2026 27.01.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisbréfin þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag. Um 10% viðbótarkaupréttinn gildir 6. gr. í almennum útboðsskilmálum ríkisbréfa.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.