18.03.26
Aðalmiðlarasamningar

Fjármálaráðherra felur Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera aðalmiðlarasamninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.

Innlendir aðilar sem hafa starfsleyfi skv. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa og geta sýnt fram á öruggt uppgjör viðskipta hjá Seðlabanka Íslands, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum.

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu t.d. í formi endurhverfra viðskipta með ríkisbréf, í samræmi við reglur og skilmála.

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisbréfa og er skylt að setja fram tiltekna lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða í ríkisbréf, með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum.

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af aðalmiðlarasamningi. Þeir aðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir um að senda rafrænt undirritaða samninga til Lánamála ríkisins fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 20. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Lánamála ríkisins, netfang: [email protected]

Samningur sýnishorn (pdf)

Aðrar fréttir

Tilkynning um útboð ríkisvíxla - RIKV 26 1118 - RIKV 27 0120
Flokkur RIKV 26 1118 RIKV 27 0120
ISIN IS0000039212 IS0000039501
Gjalddagi 18.11.2026 20.01.2027
Útboðsdagur 13.07.2026 13.07.2026
Uppgjörsdagur 15.07.2026 15.07.2026

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Greiðslur fyrir ríkisvíxlana þurfa að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi og verða bréfin afhent rafrænt sama dag.

Að öðru leyti er vísað til almennrar lýsingar íslenskra ríkisvíxla og almennra útboðsskilmála á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Freyr Hrafnsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9679.

09.07.26
Ríkisbréf
Útgáfa ríkisskuldabréfa í skiptum fyrir ómarkaðshæf skuldabréf ríkissjóðs

Ríkissjóður Íslands hefur gefið út ríkisskuldabréf í skiptum fyrir útistandandi ómarkaðshæf skuldabréf. Í meðfylgjandi töflu má sjá nafnverðið sem ríkissjóður gaf út og nafnverðsstærð flokkanna eftir útgáfuna:

Flokkur:                       ISIN:                   Nafnverð útgáfu:               Stærð flokks:

RIKS 34 1016                IS0000037737        3.126.301.000 kr.              64.899.839.972 kr.

RIKS 36 0815                IS0000037729        9.315.166.800 kr.              68.315.165.302 kr.

RIKS 39 1115                IS0000037745        4.755.752.900 kr.              53.755.751.626 kr.

Um ríkisskuldabréfin gilda „Almennir skilmálar íslenskra ríkisskuldabréfa“ og „Sértækir skilmálar“ fyrir skuldabréfaflokkana sem nálgast má á heimasíðu Lánamála ríkisins, www.lanamal.is.