18.03.26
Aðalmiðlarasamningar

Fjármálaráðherra felur Lánamálum ríkisins hjá Seðlabanka Íslands að gera aðalmiðlarasamninga í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði.

Innlendir aðilar sem hafa starfsleyfi skv. 1. mgr. 4. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002, hafa nauðsynlegan búnað til þess að taka þátt í útboðum ríkisverðbréfa og geta sýnt fram á öruggt uppgjör viðskipta hjá Seðlabanka Íslands, geta óskað eftir því að gerast aðilar að samningunum.

Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu. Einnig fá þeir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu t.d. í formi endurhverfra viðskipta með ríkisbréf, í samræmi við reglur og skilmála.

Aðalmiðlarar annast viðskiptavakt á markflokkum ríkisbréfa og er skylt að setja fram tiltekna lágmarksfjárhæð kaup- og sölutilboða í ríkisbréf, með hliðsjón af hámarksmun sem tilgreindur er í samningunum.

Frekari upplýsingar er að finna í meðfylgjandi sýnishorni af aðalmiðlarasamningi. Þeir aðilar sem hyggjast gerast aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru beðnir um að senda rafrænt undirritaða samninga til Lánamála ríkisins fyrir klukkan 16:00 föstudaginn 20. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Lánamála ríkisins, netfang: [email protected]

Samningur sýnishorn (pdf)

Aðrar fréttir

04.11.26
Ríkisbréf
Tilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 35 0917 - RIKS 37 0115 - Skiptiútboð

Útgáfa ríkisbréfa samkvæmt ársáætlun nemur tæpum 200 ma.kr. og hefur útgáfumarkmiðinu því verið náð.

Næstu útboð Lánamála verða skiptiútboð þar sem eingöngu verður hægt að greiða með ríkisbréfaflokknum RIKB 27 0415.

Flokkur RIKB 35 0917 RIKS 37 0115
ISIN IS0000035574 IS0000033793
Gjalddagi 17.09.2035 15.01.2037
Útboðsdagur 06.11.2026 06.11.2026
Uppgjörsdagur 11.11.2026 11.11.2026
     
Uppkaupsflokkur RIKB 27 0415  
Uppkaupsverð (clean) 99,8700  

Á útboðsdegi, milli kl. 10:30 og 11:00, fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisbréfum í þeim flokkum, með þeim ISIN númerum og með þeim gjalddögum sem fram koma í töflunni hér að ofan. Ríkisbréfin verða afhent rafrænt á uppgjörsdegi.

Eingöngu er hægt að greiða fyrir flokkana með uppkaupsflokknum á uppkaupsverði. Ekki er tekið við greiðslu í reiðufé.

Verðmæti uppkaupsbréfanna er metið á uppkaupsverði að viðbættum áföllnum vöxtum (þ.e. dirty price). Afhenda þarf Seðlabankanum bréfin fyrir kl. 14:00 á uppgjörsdegi.

Lánamál ríkisins greiða ekki þóknun vegna kaupa á RIKB 27 0415.

Að öðru leyti er vísað til lýsingar skuldabréfaflokksins og almennra útboðsskilmála ríkisbréfa á heimasíðu Lánamála ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins í síma 569 9635.