20.10.25
Viðskiptavakt hefst með RIKS 50 0915

Í framhaldi af útboði sem haldið var föstudaginn 17. október sl. og með vísan til aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði dags. 21. mars 2025, hefur verið ákveðið að hefja viðskiptavakt með RIKS 50 0915 frá og með uppgjörsdegi útboðsins þann 22. október 2025. Aðalmiðlarar verða skuldbundnir til þess að setja fram kaup- og sölutilboð fyrir að lágmarki 50 m.kr. að nafnverði í flokkinn. Frá sama tíma verður fyrirgreiðsla í formi endurhverfra viðskipta til hvers aðalmiðlara 2 ma.kr. að nafnverði.

Starfsfólk Lánamála ríkisins veitir nánari upplýsingar í síma 569 9994. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Aðrar fréttir

31.03.26
Ársyfirlit
Ársfjórðungsáætlun í lánamálum ríkissjóðs

Annar ársfjórðungur 2026

  • Á öðrum ársfjórðungi verða boðin til sölu ríkisbréf fyrir 40-60 ma.kr. að söluvirði.
  • Nýr óverðtryggður flokkur ríkisbréfa með gjalddaga árið 2029 verður gefinn út á ársfjórðungnum og verður stefnt á viðskiptavakt með flokkinn.
  • Flokkar sem mögulega verða boðnir út eru allir markflokkar ríkisbréfa og mun stærð þeirra og markaðsaðstæður ráða því hvort og þá hversu mikið verður selt í hverjum flokki.
  • Möguleiki er á skiptiútboðum á RIKB 26 1015 á fjórðungnum.

2.ársfj.áætlun 2026

Undirritun aðalmiðlarasamninga

Í dag var skrifað undir samninga milli Lánamála ríkisins f.h. ríkissjóðs og aðalmiðlara í tengslum við útgáfu ríkisverðbréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningunum er að viðhalda aðgengi ríkissjóðs að lánsfé, efla verðmyndun ríkisverðbréfa á eftirmarkaði og stuðla að virku markflokkakerfi.

Frá og með 1. apríl 2026 hafa fimm fjármálafyrirtæki heimild til að kalla sig „aðalmiðlara með ríkisverðbréf“. Þau eru: Arion banki hf., Fossar fjárfestingarbanki hf., Íslandsbanki hf., Kvika banki hf. og Landsbankinn hf. 

Helstu atriði aðalmiðlarasamningsins eru þessi:

  • Aðalmiðlarar hafa einir heimild til þess að leggja fram tilboð í útboðum þar sem ríkisverðbréf eru boðin til kaups eða sölu.
  • Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstakri fyrirgreiðslu, t.d. endurhverfum samningum sem Lánamál ríkisins veita fyrir hönd ríkissjóðs.
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram tilboð í útboðum ríkisverðbréfa fyrir a.m.k. 100 m.kr. að nafnverði.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka ríkisbréfa og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 til 100 m.kr. að nafnvirði í hvern flokk í kauphöll (nánar skilgreint í samningi).
  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að halda verðmun kaup- og sölutilboða innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Aðalmiðlara er heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða ef tilteknum skilyrðum er fullnægt.
  • Samningurinn gildir frá 1. apríl 2026 til 31. mars 2027.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Lánamála ríkisins, netfang: [email protected].